Rekstrarráðgjöf
Rekstrarráðgjöf miðar að því að aðstoða viðskiptavini við að takast á við þau krefjandi verkefni sem stjórnendur fást við í rekstri fyrirtækja. Sérfræðingar BDO eru þrautþjálfaðir á sínum sviðum og við lausn verkefna beita þeir fyrir sig aðferðafræði BDO sem hefur margsannað sig hjá viðskiptavinum félagsins um allan heim.