Ert þú púslið sem vantar?
BDO er ungt og vaxandi endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki á Íslandi. Vegna aukinna umsvifa leitum við nú að löggiltum endurskoðanda og reyndum verkefnastjóra með reynslu af endurskoðunarskrifstofu til að bætast í okkar góða hóp.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til [email protected]
Við erum sífellt á höttunum eftir reyndum bókurum.
Vilt þú vera með í okkar góða hópi sérfræðinga?
BDO bætir reglulega nemum í liðið, sem hyggja á frama í endurskoðun eða tengdum greinum.
Sendu okkur upplýsingar um þig, ferilskrá og framtíðarplön, og við verðum í sambandi.