Þessi síða notar cookies til þess að sníða efni og innihald betur að hverjum notanda. Með notkun þinni á síðunni samþykkir þú notkun cookies. Vinsamlegast lesið friðhelgisstefnuna til þess að fá frekari upplýsingar um notkun cookies og hvernig mögulegt er að eyða þeim eða blokka.
  • Hvers vegna BDO

    Það eru margar góðar ástæður fyrir því að velja BDO

Hvers vegna BDO

BDO á Íslandi veitir framúrskarandi þjónustu og leggur áherslu á góð tengsl við viðskiptavini sína.

Við höfum á að skipa hæfu, reynsluríku og vel menntuðu starfsfólki með mikla þekkingu, auk þess sem við getum boðið aðgang að alþjóðlegu neti sérfræðinga.

Innan raða BDO býr mikil reynsla úr íslensku atvinnulífi.

Við leggjum mikla áherslu á að vinna okkar sé fagleg og mæti væntingum viðskiptavinarins hvað gæði, áreiðanleika og tímanleika varðar en jafnframt að sú vinna verði að raunverulegri þekkingu hjá viðskiptavinunum og þeim til hagsbóta og tryggi rekstrarhagræði. 

Við ábyrgjumst beinan og auðveldan aðgang að eigendum og lykilstarfs- mönnum og leggjum áherslu á tímanleg skil.